Yonkers
Appearance
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/f/f5/View_of_Yonkers_from_the_New_Jersey_Palisades_%282%29.jpg/220px-View_of_Yonkers_from_the_New_Jersey_Palisades_%282%29.jpg)
Yonkers er 3. stærsta borg New York-fylkis og er í Westchester-sýslu. Íbúar voru um 212.000 árið 2020. Borgin er norðan Bronx, við vesturbakka Hudsonfljóts og er skilgreind sem úthverfi New York-borgar. Nafnið er komið úr hollensku en Adriaen van der Donck, fyrrum eigandi landsins, var kallaður jong (ung) heer (herra).